Hans Jónatan, Gísli Pálsson.

Hans Jónatan, Gísli Pálsson.

FRÁ JÓMFRÚAREYJUM TIL ÍSLANDS

Hans Jónatan - Maðurinn sem stal sjálfum sér - heimildamynd eftir Gísla Pálsson
60 mín

Svartigaldur í hvíta húsinu - myndbandsverk eftir Jeannette Ehlers
03:46 mín

 

UM

Mannfræðingurinn Gísli Pálsson heldur segir frá ótrúlegu lifshlaupi Hans Jónatans og ræðir myndbandsverk Jeannette Ehlers (DK), "Svartigaldur í hvíta húsinu", út frá sögu fyrrum nýlenda Dana í Vestur-Indíum.

Í kjölfarið verður ný 60 mín. löng leikin heimildamynd um Hans Jónatan, mann sem var fæddur þræll í St. Croix 1784, en lauk lífi sínu sem frjáls maður á Íslandi, til sýningar. Myndin er byggð á bók Gísla Pálssonar - Maðurinn sem stal sjálfum sér - og er unnin af Valdimari Leifssyni og Bryndísi Kristjánsdóttur.


Svartigaldur í hvíta húsinu er myndbandsverk frá 2009 þar sem listakonan, gerð nánast ósýnileg með myndblöndunartækni, fremur vúdúdans í Marienborg – danska ráðherrabústaðnum sem staðsettur er norður af Kaupmannahöfn. Byggingin tengist sögu þrælaverslunar danskra manna í Vestur-Indíum. Hún var byggð 1744 sem sumardvalarstaður yfirkafteinsins Olfert Fischer og var fram á 19. öldina í eigu raðar verslunarmanna sem margir höfðu auðgast á þrælaverslun og sykurframleiðslu á Jómfrúareyjunum.
Með verkinu varpar Jeannette ljósi á þá gleymsku sem ríkt hefur í Danmörku gagnvart nýlendusögunni en hún gerir sögu þrælasölu og áhrif á nútímasamfélag gjarnan að yrkisefni í myndverkum sínum.
 

 

Gísli Pálsson (f.  1949) lauk doktorsprófi í mannfræði árið 1982 frá University of Manchester í Englandi. Hann er búsettur í Reykjavík og er prófessor í mannfræði við Háskóla Íslands. Hann er rithöfundur en hefur einnig ritstýrt og prófarkalesið fjölda greina og bóka. Meðal bóka hans má nefna Writing on Ice: The Ethnographic Notebooks of Vilhjalmur Stefansson. Hann hefur hlotið fjölda viðurkenninga fyrir störf sín á sviði vísinda.

Jeannette Ehlers (f. 1973) er myndlistarmaður af karabísku bergi brotin fædd og búsett í Danmörku. Ehlers útskrifaðist úr námi við Konunglega listaháskólann í Kaupmannahöfn 2006. Í vídeóverkum og stafrænt breyttum ljósmyndum fjallar Ehlers um nýlenduhyggju, eftirlendur og sjálfsmynd svartra þar á meðal þrælahald undir stjórn Danmerkur sem er almennt óþekktur hluti danskrar sögu. Ehlers fjallar um uppruna og sjálfsmyndir í verkum sínum þar sem hennar eiginn dansk/karabíski bakgrunnur spilar mikilvægt hlutverk og lætur reyna á möguleika kvikmyndamiðilsins að miðla efni bæði sjónrænt og efnislega. Hún hefur sýnt verk sín á alþjóðlegum vettvangi, þar á meðal í Bandaríkjunum, Bretlandi, Danmörku, Hollandi, Kóreu og Þýskalandi.

FROM THE VIRGIN ISLANDS TO ICELAND

Hans Jónatan - The Man Who Stole Himself - documentary by Gísli Pálsson
60 min

Black Magic at the White House - video work by Jeannette Ehlers
03:46 min

 

About

The Anthropologist Gísli Pálsson tells of the incredible life of Hans Jonathan and discusses the video piece by Jeannette Ehlers (DK), Black Magic at the White House, in relation to Danish colonial history in the West-Indies. 

Following will be a screening of a new 60 minute long documentary about Hans Jónatan, a man that was born into slavery in St. Croix in 1784 but died in Iceland a free man. The documentary is based on Gísli Pálsson´s book - The Man Who Stole Himself - and is produced by Valdimar Leifsson and Bryndís Kristjánsdóttir.


In her video piece from 2009, the artist, rendered nearly invisible via video manipulation, performs a voudon dance in Marienborg, the official residence of Denmark’s prime minister located just north of Copenhagen. The building has strong connections to the Transatlantic slave trade. It was built in 1744 as a summer residence for the commander Olfert Fischer and was consequently owned by a row of merchants, many of which had accumulated wealth from the trade in slaves and sugar in the West-Indies. With the piece, Ehlers wishes to shed light on colonial amnesia in Denmark. In her work she often deals with the history of the Transatlantic Slave Trade and its impact on modern society.

 

 

Gísli Pálsson (b. 1949) received his doctor degree in anthropology 1982 from the University of Manchester in England. He is based in Reykjavík and is a professor of anthropology at the University of Iceland. He is an author, editor, or co-editor of several books, including Writing on Ice: The Ethnographic Notebooks of Vilhjálmur Stefánsson. He has won several awards for his work in the field of science.

Jeannette Ehlers (b. 1973) is a Caribbean diaspora visual artist born and based in Denmark. Ehlers studied at The Royal Danish Academy of Fine Arts in Denmark in 2006. Through digitally manipulated photographs and videos, she engages with coloniality, decoloniality, blackness and black identity, among them Denmark’s role as a slave nation - part of Danish cultural heritage, which often gets overlooked in the general historiography.  For years, she has created cinematic universes that delve into ethnicity and identity inspired by her own Danish / West Indian background and challenges the film medium's ability to communicate in a visually fascinating and engaging language. She has exhibited her work internationally, for instance in Denmark, Germany, Korea, The Netherlands, The United Kingdom and The United States.