stjórnarskrá er ferli -
Upprunalegar útgáfur, afrit og uppköst af íslenskri og danskri stjórnarskrá til sýnis almenningi
Um verkið
“Stjórnarskrá er ferli”, er nýtt verk eftir listamennina Libiu Castro & Ólaf Ólafsson. Í þessu verki munu fimm íslenskar stjórnarskrár vera til sýnis opinberlega í fyrsta skipti. Listamennirnir óskuðu eftir því fyrir gerð verksins við Þjóðskjalasafn Íslands að fá lánað frumrit af hverri stjórnarskrá sem hefur á einhverjum tímapunkti verið við lýði á Íslandi og sömuleiðis tillögu að nýrri stjórnarskrá sem skrifuð var árið 2011. Þjóðskjalasafn Íslands samþykkti að lána frumritin sem í þeirra eigu eru, en það er gildandi stjórnarskrá, Stjórnarskrá Lýðveldisins Íslands frá árinu 1944, Stjórnarskrá konungsríkisins Íslands frá árinu 1920 og Stjórnarskrá um hin sérstöku málefni Íslands frá árinu 1874. Frá Landsbókasafni Íslands Háskólabókasafni fengu þau svo að láni ritið Tíðindi frá þjóðfundi Íslendinga frá árinu 1851, sem inniheldur hina dönsku stjórnarskrá Grundloven, frá 1849 sem var einnig stjórnarskrá Íslands á þeim tíma. Með verkinu er einnig boðið upp á ljósrit af stjórnarskránum sem áhorfendur geta lesið og tekið með sér.
Á meðan á hátíðinni stendur mun einnig verða haldinn opinn fundur um stjórnarskrárnar, sögu þeirra og áframhaldandi ferli.
Dagskrá fundar:
Libia Castro og Ólafur Ólafsson, myndlistarmenn, opna fundinn.
19.45: “Með frelsisskrá í föðurhendi. Um varðveislusögu stjórnarskráa Íslands” - Njörður Sigurðsson, sviðsstjóri upplýsinga- og skjalasviðs Þjóðskjalasafns Íslands
20.00: “Hvers vegna vilja Íslendingar nýja stjórnarskrá?” - Ragnheiður Kristjánsdóttir, dósent í sagnfræði við Hí (sérsvið er stjórnmála- og hugmyndasaga 19. og 20. aldar)
20.15: “Stjórnarskrárferli” - Ragnar Aðalsteinsson, hæstaréttarlögmaður og fyrrverandi formaður og fulltrúi í stjórn Mannréttindaskrifstofu Íslands
20.30: Pallborðsumræður um sögu og framtíð stjórnarskrárinnar
Stjórnandi: Sara S. Öldudóttir, sýningarstjóri listahátíðarinnar Cycle
Þátttakendur í pallborði eru:
Birgitta Jónsdóttir – skáld, alþingismaður og þingflokksformaður Pírata
Andri Snær Magnason – rithöfundur og umhverfisverndarsinni
Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir – framkvæmdastýra Kvenréttindafélags Íslands
Hörður Torfason, tónlistarmaður og aðgerðarsinni
-------------
Þann 20. október verða fimm ár liðin frá því að almenningur samþykkti stjórnarskrártillöguna frá 2011 í þjóðaratkvæðagreiðslu. Hver er merking nýju tillögunnar í samhengi við „Stjórnarskrá um hin sjerstaklegu málefni Íslands“ frá árinu 1874?
Á fundinum verða kynnt mismunandi sjónarhorn á sögu og þróun stjórnarskrár Íslands og tengsl hennar við sjálfstæðis- og mannréttindabaráttu á Íslandi.
Breytist hin opinbera frásögn af sjálfsstæðisbaráttu Íslands ef við skoðum hana út frá sögu stjórnarskrárinnar? Og í hvaða kafla þeirrar sögu erum við stödd í dag?
Á fundinum á meðal fólksins, verða frumrit allra stjórnarskránna þriggja til sýnis uppi á borði í Gerðarsafni, listasafni Kópavogs. Borðið er smíðað úr rekaviði úr Ófeigsfirði.
Libia Castro (f. 1970) frá Spáni og Ólafur Ólafsson (f. 1973) frá Íslandi eru tvíeyki með bækistöðvar í Rotterdam. Samvinna þeirra hófst í Hollandi árið 1997 þegar þau voru í MA námi í sjónlistum við Frank Mohr Institute í Groningen. Verk þeirra byggja á samvinnu og þverfaglegri nálgun þar sem þau nýta vídeó, ljósmyndun, hljóð- og margmiðlunarinnsetningar í framsetningu sinni. Libia og Ólafur voru fulltrúar íslenska skálans á 54. Feneyjartvíæringnum árið 2011 með verki sínu Under Deconstruction.
A Constitution is a Process –
Original Copies and a Publication of Icelandic and Danish Constitutions and Constitutional Proposals on Public Display
About the work
A Constitution is a Process, is a new work from the artists Libia Castro & Ólafur Ólafsson. The work will mark the first ever public presentation of those five constitutions together. For the work, the artists requested to the National Archive of Iceland to borrow one original copy of each of the constitutions that have been in place in Iceland, as well as a copy of the Proposal for a new Constitution for the Republic of Iceland written in 2011. The National Archive agreed to lend the original copies they had in store, which are the current Constitution of the Republic of Iceland from 1944, The Constitution of the Kingdom of Iceland from 1920 and The Constitution on the Special Affairs of Iceland from 1874. From the National Library the artists are also borrowing a copy of the publication Tíðindi frá þjóðfundi íslendinga árið 1851, containing the Danish constitution Grundlov, from 1849 which also was a constitution to Iceland. The work also offers the viewers, photocopies of all the constitutions to read and keep.
During the festival an open meeting will be held on the constitutions, their history and ongoing process.
Libia Castro (b. 1970) from Spain and Ólafur Ólafsson (b. 1973) from Iceland are based in Rotterdam. They started their collaboration in the Netherlands in 1997. Their works are collaborative and interdisciplinary; they work with video, photography, audio sculpture and multimedia installations, performance and interventions. Libia and Ólafur represented the Icelandic Pavilion at the 54th Biennale di Venezia (2011). They have presented their works in the public space in different cities across Europe and have exhibited solo shows at various venues around the globe.